Lyfjaiðnaður og dreifing:

Undir þennan flokk falla verk sem snúa að lyfjaverksmiðjum og dreifingaraðilum lyfja s.s. apótekum.                                   Aðkoma Lagnatækni hefur verið breytileg, hvað einstök verk varðar, en Lagnatækni hefur unnið að skipulagsvinnu lyfjaverksmiðja, forhönnun og hönnun margskonar lagna- og loftræstikerfa. Þar er um að ræða öll almenn lagnakerfi, en til viðbótar eru sérhæfð kerfi, eins og fyrir afjónað og sérhreinsað vatn, ýmsar gerðir gaskerfa, sérhæfð þrýstiloftskerfi og kerfi sem eru hlutar framleiðslubúnaðar. Lagnatækni hefur hannað nokkur stór vökvakælikerfi sem þjóna lyfjaverksmiðjum, á suðlægum slóðum, og eru þau oft jafnframt búin varmaendurvinnslubúnaði til framleiðslu á hitunarvatni. Til viðbótar þeim loftræstikerfum sem þjóna sérhæfðum aðstæðum í lyfjaframleiðslu, hefur Lagnatækni fengist við hönnun á sérhæfðum loftflutningskerfum fyrir framleiðslubúnað, auk umfangsmikilla rykútsogskerfa og ryksugukerfa.                                                                          Lagnatækni hefur oft á tíðum séð um umsýslu og eftirlit og einnig séð um prófanir og gangsetningar á þessum kerfum og hefur því umfangsmikla þekkingu og reynslu í þeim flóknu ferlum sem þar þarf að beita.

Dæmi um verk sem starfsmenn Lagnatækni hafa unnið að í þessum flokki eru:  

  • Actavis, lyfjaverksmiðja, Hafnarfirði                         

  • Actavis, lyfjaverksmiðja, Zejtun, Möltu                     

  • Actavis, lyfjaverksmiðjur, Dubnitza, Búlgaríu                                                                        

  • Distica, Garðabæ                                                         

  • Lyfjaver, apótek, Suðurlandsbraut  

                           

___________________________________________________________________________________________________________________
LAGNATÆKNI ehf, Hamraborg 12, 200 Kópavogur. Sími: 564-5252, fax 564-5251, lt@lagnataekni.is