Aðkoma Lagnatækni hefur verið mismunandi hvað einstök verk varðar, en auk hönnunar á almennum lagna- og loftræstikerfum hefur fyrirtækið séð um skipulagsvinnu rannsóknarstofa, hönnun umfangsmikilla gaskerfa fyrir ýmis rannsóknartæki og gerð sérhæfðra kerfa til meðhöndlunar á frárennsli og fleira.

Dæmi um verk sem starfsmenn Lagnatækni hafa unnið að í þessum flokki eru:

  • Alvotech, rannsóknarstofur í hátæknisetri, Reykjavík

  • Actavis, rannsóknarhús, Hafnarfirði

  • Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, öryggisrannsóknarstofa BSL-3

  • Actavis, rannsóknarstofa, Zejtun, Möltu 

  • Oculis, rannsóknarstofa í Glæsibæ, Reykjavík